Sorphirða: Kostnaður tvöfaldast, ánægja minnst í Reykjavík

Ljósmynd: Loren  Biser / Pexels
Ljósmynd: Loren Biser / Pexels

Kostnaður vegna sorphirðu frá heimilum hefur hækkað um 104% að raunvirði frá árinu 2008, sem er nærri tvöfalt hraðar en almennt verðlag. Þetta kemur fram í nýlegu áliti Viðskiptaráðs Íslands. Á sama tímabili hafa aðrir liðir eins og húshitun og fráveita hækkað mun minna.

Sérstaklega hefur kostnaðurinn aukist verulega frá árinu 2021, eða um tæp 50% að raunvirði, eftir að ný lög um meðhöndlun úrgangs tóku gildi. Árlegur kostnaður við sorpþjónustu heimila er að jafnaði 75 þúsund krónur í stærstu sveitarfélögum landsins. Hæstur er kostnaðurinn í Reykjavík, eða 85 þúsund krónur, en lægstur í Reykjanesbæ, 62 þúsund krónur á ári. Þessar tölur miðast við heimili með tvær tvískiptar tunnur og fast gjald vegna grenndargáma.

Samkeppni og útboð

Viðskiptaráð bendir á að mesta samkeppnin í sorpþjónustu sé á Akureyri og í Reykjanesbæ. Reykjavík er eitt af sjö sveitarfélögum á landinu sem ekki bjóða út sorpþjónustu sína, en öll önnur stærstu sveitarfélög gera það. Ráðið nefnir Akureyri sem dæmi um ávinning af útboðum, en bærinn sparaði 700 milljónir króna þegar þjónustan var boðin út í fyrsta skipti árið 2010.

Könnun Maskínu frá 2023 sýnir að ánægja með sorphirðuþjónustu er minnst meðal Reykvíkinga, þar sem 41% telja tæmingu sorps ganga illa. Kópavogsbúar eru hins vegar ánægðastir, en 78% þeirra telja þjónustuna ganga vel og tunnur tæmdar tímanlega. Næstmest er ánægjan í Garðabæ og Mosfellsbæ.

Sjá nánar: mbl.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →