Sólborgir vilja reisa brottvísunarstöð úr gámaeiningum á Rockville-svæðinu
Suðurnesjabær hefur hafnað beiðni Sólborga ehf. um milligöngu vegna mögulegrar staðsetningar brottvísunarstöðvar á Rockville-svæðinu. Beiðninni var hafnað vegna ákvæða í aðalskipulagi og óvissu um hlutverk sveitarfélagsins í leigusamningum við stjórnvöld.
Suðurnesjabær hafnaði fyrir helgi beiðni Sólborga ehf. um milligöngu vegna afnota af Rockville-svæðinu í tengslum við fyrirhugaða brottvísunarstöð stjórnvalda. Samkvæmt upplýsingum frá bænum var beiðninni hafnað vegna þess að hún hefði kallað á breytingar á aðalskipulagi, það væri vandkvæðum bundið fyrir sveitarfélagið að vera í milligöngu um leigusamning við stjórnvöld og ekki þótti mögulegt að veita einum bjóðanda sérstök vilyrði.
Sólborgir ehf., sem er í eigu Reykjanes Investment ehf. og Þórukots ehf., sendi bæjarráði Suðurnesjabæjar beiðni þar sem félagið lýsti yfir áhuga á að taka þátt í útboði um húsnæði fyrir brottfararstöðina. Félagið telur Rockville-svæðið sérlega vel til þess fallið vegna staðsetningar utan íbúabyggðar og þess að svæðið er skilgreint sem athafnasvæði í gildandi aðalskipulagi. Áform Sólborga eru að reisa húsnæðið úr vandaðri gámaeiningum, með fullri aðgreiningu og sólarhringsvörslu.
Sem stendur leitar dómsmálaráðuneytið að bráðabirgðahúsnæði fyrir brottvísunarstöðina og fjölskylduhúsnæði sem verður aðgreint frá henni. Stefnt er að opnun stöðvarinnar 1. desember, þegar ný lög um hana taka gildi. Upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, Freyr Gígja Gunnarsson, hefur ekki útilokað að bráðabirgðahúsnæðið gæti orðið varanlegt ef það reynist henta vel.
Heimild: RÚV