Byggingaraðilar fá meira svigrúm í íbúðastærðum og verslunarrýmum

Reykjavíkurborg hefur samþykkt breytingar sem veita byggingaraðilum meira svigrúm við ákvörðun á stærð og herbergjafjölda íbúða. Jafnframt verður dregið úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum í nýbyggingum.

Byggingaraðilar fá meira svigrúm í íbúðastærðum og verslunarrýmum
Mynd: Jan van der Wolf / Pexels

Reykjavíkurborg hefur samþykkt breytingar sem veita byggingaraðilum meira svigrúm við ákvörðun á stærð og herbergjafjölda íbúða. Jafnframt verður dregið úr kröfum um verslun og þjónustu á jarðhæðum í nýbyggingum.

Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti breytingarnar með fimm atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar, Framsóknarflokksins og Miðflokksins, en tveir fulltrúar Samfylkingarinnar greiddu atkvæði gegn þeim.

Framvegis verða almennt ekki sett bindandi hlutfallsviðmið um stærð eða herbergjafjölda íbúða á einstökum byggingarreitum, nema sérstakar skipulagslegar eða félagslegar ástæður krefjist þess. Umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar bendir á að stíf viðmið geti orðið úrelt þegar langt líður frá gerð skipulags þar til framkvæmdir hefjast.

Sviðið leggur þó áherslu á að viðmið verði áfram nauðsynleg við skipulagningu nýrra skólahverfa og stærri hverfishluta, til að borgin geti áætlað þörf fyrir innviði eins og skóla og samgöngur.

Deila Facebook X LinkedIn