Skútaberg á Moldhaugnahálsi

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra lýsir yfir áhyggjum vegna tafa á framkvæmdum við varanlegt geymslusvæði Skútabergs á Moldhaugnahálsi og hefur sett fyrirtækinu lokafrest til 1. ágúst til að ljúka verkinu.

Skútaberg á Moldhaugnahálsi
Mynd: Braggi.is

Framkvæmdum við varanlegt geymslusvæði Skútabergs á Moldhaugnahálsi hefur enn ekki verið lokið. Jarðvinna hófst að nýju fyrr í júní eftir að hafa tafist vegna frostkafla í jörðu.

Heilbrigðisnefnd Norðurlands eystra hefur lýst yfir áhyggjum af þessum töfum og nauðsynlegum úrbótum á svæðinu. Nefndin minnir á að á fundi í nóvember 2025 voru kynnt áform um að taka hluta geymslusvæðisins í notkun í janúar síðastliðnum. Þar sem engir hlutir hafa verið fluttir inn á svæðið hefur þetta ekki gengið eftir. Fyrirtækinu hefur þegar verið veitt áminning vegna umgengni á svæðinu.

Heilbrigðisnefndin ítrekar að frekari tafir á tiltekt eru óásættanlegar og hefur samþykkt að veita Skútabergi lokafrest til 1. ágúst næstkomandi til að koma gámum, vinnubúðaeiningum og öðrum lausamunum fyrir á geymslusvæðinu. Verði ekki brugðist við innan tilgreinds frests mun nefndin grípa til frekari þvingunarúrræða.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Víkublaðið

Heimild: Víkublaðið

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →