Skriðuviðvörun til morguns
„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni á þessum áhrifasvæðum og ekki hægt að útiloka fleiri skriður eða grjóthrun.“Þetta segir Daniel Ben-
„Við fengum nokkrar tilkynningar um aurskriður á Austfjörðum en ekkert alvarlegt sem olli tjóni eða lokaði vegum. En það er mjög mikið vatn á ferðinni á þessum áhrifasvæðum og ekki hægt að útiloka fleiri skriður eða grjóthrun.“Þetta segir Daniel Ben-Yehoshua, sérfræðingur í ofanflóðahættumati hjá Veðurstofunni.Nokkrar aurskriður hafa fallið á Austfjörðum þar sem skriðuviðvörun er í gildi. Fossá við botn Reyðarfjarðar hefur verið mjög vatnsmikil. Hún flæddi yfir bakka sína í morgun og sökkti vinnuvélum við bæinn Sléttu.Gul skriðuviðvörun er í gildi á Suðausturlandi, Austfjörðum og sunnanverðu miðhálendinu. Hún verður í gildi til klukkan 6 í fyrramálið.Á Austfjörðum er jarðvegur mettaður og úrkoma getur valdið skriðuvirkni, einkum í bröttum hlíðum. Draga á úr úrkomu í kvöld og nótt og þá ætti skriðuhætta að minnka.Vinnuvélar sukku og bjarga þurfti féTilkynnt var um tvær skriður í Reyðarfirði í morgun og eina í Berufirði í gær.Fossá við botn Reyðarfjarðar hefur verið mjög vatnsmikil og flæddi yfir bakka sína í morgun, þar sem hún sökkti vinnuvélum við bæinn Sléttu.Bóndi í Fljótsdal segist hafa þurft að bjarga fé sínu frá drukknun eftir að tún fóru á kaf í vatn.Daniel biðlar til almennings að fylgjast með tilkynningum frá Vegagerðinni og vera ekki lengur en nauðsynlegt er fyrir neðan brattar fjallshlíðar þar sem viðvörun er í gildi.
Heimild: RÚV