Skortir samræmingu í myglugreiningum
Skortur á samræmdum leiðbeiningum um myglugreiningar og viðbrögð við henni í atvinnuhúsnæði skapar óljósa stöðu fyrir starfsfólk og atvinnurekendur.
Þótt þekking á innivist, rakaskemmdum og myglu í vinnuumhverfi aukist, fjölgar ekki greiningum á myglu í atvinnuhúsnæði að sögn Sylgju Daggar Sigurjónsdóttur, líf- og lýðheilsufræðings hjá Verkvist. Hún bendir á að þörf sé á samræmdum leiðbeiningum um úttektir á húsnæði og að á meðan slíkar leiðbeiningar skorti, vanti einnig samræmdar tillögur að lausnum. „Þetta hefur því miður verið alltof algengt og alltof lengi. Það er kominn tími til að við skoðum þessi mál alvarlega og finnum einhverjar lausnir fyrir fólk í þessari stöðu, því það er ömurleg staða að vera fullfrískur til vinnu en bara ekki á þeim vinnustað sem er í boði,“ segir Sylgja Dögg.
Réttindi starfsfólks sem veikist vegna myglu eru óljós, að mati Sylgju, þrátt fyrir að lög um vinnuvernd og reglur um hollustuhætti kveði á um að atvinnurekandi beri ábyrgð á vinnuumhverfi og að það skaði ekki heilsu starfsfólks. Hún undirstrikar að málið sé flókið og snerti bæði byggingar- og heilbrigðismál, og að mikilvægt sé að fagstéttir skilji og tali saman. Erfitt geti verið að sanna orsakatengslin beint, en til eru greiningarlyklar og spurningalistar sem geta bent til þess hvort einkenni tengist viðveru í ákveðnu húsnæði.
Von er á leiðbeiningum frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun um faglegar úttektir á húsnæði og samræmingu stofnana, en slíkar leiðbeiningar eru ekki vanþörf að mati Sylgju.
Heimild: RÚV