Skora á Vegagerðina að fara tafarlaust í aðgerðir á veginum um Kambaskriður
Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á Vegagerðina og innviðaráðuneytið að ráðast tafarlaust í bráðabirgða- og öryggisaðgerðir á veginum um Kambaskriður, en þar hefur síendurtekið grjóthrun skapað alvarlega hættu fyrir vegfarendur. Innan við vika er síðan u
Bæjarráð Fjarðabyggðar skorar á Vegagerðina og innviðaráðuneytið að ráðast tafarlaust í bráðabirgða- og öryggisaðgerðir á veginum um Kambaskriður, en þar hefur síendurtekið grjóthrun skapað alvarlega hættu fyrir vegfarendur. Innan við vika er síðan um tíu hnullungar féllu á vegkaflann milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur, þar sem reglulegur skólaakstur fer fram að vetrarlagi.
Þrátt fyrir að endurbætur og lagfæringar á þessum kafla vegarins séu á gildandi samgönguáætlun, er ekki gert ráð fyrir að varanlegum framkvæmdum ljúki fyrr en að fjórum árum liðnum. Bæjarráð telur þetta óásættanlegt ástand miðað við daglegar nauðsynlegar ferðir á milli byggðakjarnanna.
Kallað er eftir tafarlausu viðbragði Vegagerðarinnar og innviðaráðuneytisins, þar sem áhersla er lögð á grjóthrunsvarnir, reglubundið eftirlit og aðrar ráðstafanir sem geta tryggt öryggi og ásættanlegt ástand vegarins þar til varanleg endurbygging fer fram. Mikilvægt er að tryggja að vegurinn sé öruggur og nothæfur fram að fyrirhuguðum framkvæmdum.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Austurfrétt
Heimild: Austurfrétt