Skemmdir á nýju vatnslögninni
Útlagning nýju vatnslagnarinnar til Vestmannaeyja hefur verið stöðvuð vegna skemmda sem urðu aðfaranótt sunnudags. Lögnin er almannavarnalögn og átti að vera til vara ef neysluvatnslögnin yrði fyrir skemmdum.
Útlagning nýju vatnslagnarinnar til Vestmannaeyja hefur verið stöðvuð vegna þess að skemmdir urðu á henni aðfaranótt sunnudags.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vestmannaeyjabæ. Lögnin er almannavarnalögn og er til vara ef eitthvað kemur fyrir neysluvatnslögnina til Vestmannaeyja. Sú lögn varð fyrir skemmdum eftir að akkeri togarans Hugins VE 55 hafnaði á henni í nóvember 2023.
Byrjað var að leggja almannavarnalögnina 4. ágúst. Eftir að skemmdir urðu á henni um helgina var ráðist í greiningar- og úttektarvinnu á vettvangi til að meta stöðuna.
„Sú vinna hefur staðið yfir síðustu daga og er nú beðið eftir formlegri skýrslu frá Subsea 7 sem mun staðfesta bæði nákvæmar orsakir tjónsins og umfang þess,“ segir í tilkynningu frá bænum.
Heimild: RÚV