Skagafjörður býðst til að flýta uppbyggingu verknámshúsnæðis FNV
Sveitarstjórnin í Skagafirði hefur boðist til að taka að sér framkvæmdastjórn vegna stækkunar verknámshúsnæðis Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra (FNV) á Sauðárkróki. Markmiðið er að flýta fyrir uppbyggingu sem hefur tafist víða um land.
Ásmundur Einar Daðason, þáverandi mennta- og barnamálaráðherra, kynnti árið 2023 áform um að byggja 12-16 þúsund fermetra undir verknám á landsvísu. Framkvæmdir hófust við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, en verknámsskólar á landsbyggðinni
Skólameistari FNV og sveitarstjóri Skagafjarðar hafa fundað með Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, um málið. Sigfús segir að fundirnir hafi verið jákvæðir og hann vænti góðra frétta innan skamms.
Sjá nánar: ruv.is