Silfurbraut – gatnagerð og lagnir
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Silfurbraut – gatnagerð og lagnir“ á Höfn. Um er að ræða almennt útboð þar sem innifalið í tilboði skal vera allt sem þarf til að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum. Verk
Sveitarfélagið Hornafjörður óskar eftir tilboðum í verkið „Silfurbraut – gatnagerð og lagnir“ á Höfn. Um er að ræða almennt útboð þar sem innifalið í tilboði skal vera allt sem þarf til að ljúka verkinu eins og það er skilgreint í útboðsgögnum.
Verkið felst í endurnýjun lagna og gatnagerð Silfurbrautar, sem er um 203 metra löng, með gangstéttum beggja megin. Verktaki mun grafa fyrir fráveitulögnum, fylla með burðarhæfu efni, þjappa og koma fyrir fráveitulögnum. Einnig skal verktaki rétta fyllingar af og leggja út afréttingarlag/burðarlag, og undirbúa götu og gangstétt undir malbikun. Malbikun sjálf er ekki innifalin í þessu verki.
Helstu verkþættir eru gröftur út götustæði (1.800 m3), gröftur fyrir lögnum (1.560 m3), söndun (385 m3), fylling í skurði (1.175 m3), styrktarlag (1.375 m3), burðarlag (360 m3), kantsteinar (411 m), fráveitulagnir (549 m) og götubrunnar (12 stk).
Gert er ráð fyrir að götur verði malbikaðar sumarið/haustið 2026 og skal verktaki samræma vinnu við götuna með umsjónarmanni verkkaupa. Verklok eru áætluð 31. ágúst 2026. Framkvæmdatími hefst við undirritun verksamnings og skal greinargóð tímaáætlun liggja fyrir við undirritun. Útboðsgögn fást rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is. Tilboðsfrestur er til 29. apríl 2026.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hornafjörður útboð
Heimild: Hornafjörður útboð