Sextíu milljónir í langþráðar viðgerðir í Breiðdalsskóla
Langþráðar viðgerðir eru hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík, en framkvæmdirnar kosta um 60 milljónir króna og eru áætlaðar til þriggja mánaða. Skólahaldi verður hagað meðan á framkvæmdum stendur.
Eftir áralanga bið eru framkvæmdir hafnar á leik- og grunnskólanum á Breiðdalsvík vegna vatnsskemmda sem hófust vegna leka.
Skólarnir í Breiðdalsvík og Stöðvarfirði voru sameinaðir árið 2018 vegna fækkunar nemenda. Síðan þá hefur skólinn starfað á báðum stöðum og starfsfólk og nemendur fara milli bæjanna eftir stundatöflu. Leikskólabörn eru alla daga í kennslu á Breiðdalsvík.
Steinþór Snær Þrastarson, skólastjóri, segir að um 60 milljónum króna hafi verið ráðstafað í verkið, sem er áætlað að taka um þrjá mánuði. Innanhúss framkvæmdirnar eiga þó aðeins að standa næstu fjórar vikur og raska skólastarfi lítillega á meðan.
Kennsla fyrir grunnskólabörn verður á Stöðvarfirði næstu 3-4 vikur, en leikskólinn getur starfað áfram á Breiðdalsvík þó framkvæmdir standi yfir í húsnæðinu.
Skipt verður um yfir þrjátíu ára gömul gólfefni, kerfisloft og ljósabúnað. Einnig verður skipt um glugga og gamla þakið, sem hafði lekið um langan tíma, verður rifið og nýtt byggt.
„Það hefur ekki mælst mygla, sem betur fer. En það er búið að leka síðan ég var í skóla, að einhverju leyti, þannig í mjög mörg ár,“ segir skólastjórinn.
Alls eru 37 nemendur í grunnskólanum, 16 þeirra búa á Stöðvarfirði og 21 á Breiðdalsvík. Nemendur fara í skólann í næsta bæ hluta úr viku, svo hluti nemenda keyrir tæpa 20 kílómetra tvisvar á dag.
Þetta er eini skólinn á landinu með slíkt fyrirkomulag, að kennsla sé sitt á hvað milli bæja. Steinþór segir næsta mál á dagskrá að bæta öryggi á veginum milli skólanna. Foreldrar og skólaráð hafa í langan tíma bent á hve algengt grjóthrun sé úr Kambanesskriðum þar sem börnin fara um á hverjum degi. Frekari skriðuvarnir á þeim vegi eru áætlaðar í samgönguáætlun í fyrsta lagi árið 2030.
Heimild: RÚV