Sex létust í eldsvoða í Brussel

Sex létust í eldsvoða í miðborg Brussel í gærmorgun þegar eldur kviknaði í Oxy-turninum, sem er í byggingu. Tveir voru fluttir á sjúkrahús með alvarleg brunasár.

Sex létust í eldsvoða í Brussel
Mynd: Washington State Dept of Transportation (CC BY-SA)

Sex manns létust í eldsvoða sem kviknaði á byggingarsvæði í miðborg Brussel í gærmorgun. Eldurinn kom upp í Oxy-turninum, sem er enn í smíðum og mun hýsa íbúðir, hótel, veitingastaði og bari þegar framkvæmdum lýkur. Turninn stendur skammt frá Grand Place-torginu.

Slökkvilið var kallað á vettvang um klukkan átta að staðartíma. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins, en við leit kom í ljós að reykur og eldur höfðu borist í lyftustokka þar sem tvær lyftur voru fastar. Björgunaraðgerðir stóðu yfir í nokkrar klukkustundir. Þegar slökkviliðsmenn opnuðu aðra lyftuna fundust þar sex látnir.

Philippe Close, borgarstjóri Brussel, Filippus Belgíukonungur og Bart de Wever forsætisráðherra mættu á vettvang. Tveir voru fluttir á sjúkrahús með alvarleg brunasár. Upptök eldsins liggja ekki fyrir og rannsókn stendur yfir. Samkvæmt belgíska ríkismiðlinum RTBF gætu fleiri fórnarlömb enn verið í byggingunni, þar sem enn hefur ekki verið leitað í einni af þremur lyftum turnsins, sem hefur verið notuð undir vöruflutninga.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →