Sérfræðingar ON á stærstu jarðhitaráðstefnu heims
Sérfræðingar ON taka þátt í World Geothermal Congress og flytja erindi um nýsköpun, rekstur, boranir og orkuöryggi. Árni Hrannar fjallar um borprógramm sem felur í sér borun á 16 nýjum borholum næstu tvö árin.
Sérfræðingar ON taka þátt í World Geothermal Congress, stærstu jarðhitaráðstefnu heims, til að miðla sérþekkingu Íslands í nýtingu jarðhita. Þeir flytja fjölbreytt erindi um nýsköpun í orkunýtingu, rekstur jarðhitavirkjana, boranir, orkuöryggi og þróun sjálfbærra innviða.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, mun flytja erindi um borprógramm sem felur í sér borun á 16 nýjum borholum á næstu tveimur árum. Helga Kristín Jóhannsdóttir, deildarstjóri Jarðhitagarðs, kynnir hvernig samstarf innan Jarðhitagarðsins hefur skapað alþjóðlega athygli og ný tækifæri í fullnýtingu auðlinda og hringrásarhagkerfi.
Heimild: on.is