Nýtt fjölbýli í Mosfellsbæ frá 2021 til sölu
Þriggja herbergja endaíbúð við Liljugötu 5 í Mosfellsbæ hefur verið sett á sölu. Eignin er hluti af tveggja hæða fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2021 og er ásett verð 67,5 milljónir króna.
Þriggja herbergja endaíbúð við Liljugötu 5 í Mosfellsbæ hefur verið sett á sölu. Eignin er hluti af tveggja hæða fjölbýlishúsi sem var byggt árið 2021 og er ásett verð 67,5 milljónir króna.
Íbúðin er á fyrstu hæð og er samtals 69,8 fermetrar að stærð, þar af er íbúðarrýmið 67,5 fermetrar og sérgeymsla á annarri hæð 2,3 fermetrar. Hún skiptist í forstofu, stofu, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Úr íbúðinni er gengið út á hellulagða verönd með skjólgirðingu.
Fjölbýlishúsið er staðsteypt, einangrað að utan og klætt bárujárni. Það hýsir átta íbúðir, fjórar á hvorri hæð, og hefur sameiginlega vagna- og hjólageymslu á jarðhæð. Lóðin er fullfrágengin með tíu bílastæðum, þar á meðal hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla, og hellulagðri gönguleið með snjóbræðslu.
Húsið var hannað og teiknað af Teiknistofu Ingimundar Sveinssonar.