Einbýli með 5.000 fermetra lóð í Mosfellsdal til sölu
Einbýlishúsið Laugaból 2 við Reykjahlíðarafleggjara í Mosfellsdal er komið á sölu. Ásett verð eignarinnar er 165 milljónir króna. Húsið var reist árið 1987 og stendur á rúmlega 5.000 fermetra eignarlóð.

Húsið er 188,4 fermetrar að stærð og er allt á einni hæð. Núverandi eigendur byggðu húsið og hafa búið þar frá upphafi. Arkitekt hússins var Egill Guðmundsson.
Í húsinu eru fimm svefnherbergi, stofa, sjónvarpsherbergi, eldhús, borðstofa, baðherbergi, gestasnyrting, þvottahús, geymsla og geymsluloft. Fjögur svefnherbergjanna eru á sérstökum gangi en fimmta herbergið er við forstofu.
Lóðin er 5.005 fermetrar og einkennist af miklum trjágróðri. Á lóðinni eru fjögur gróðurhús og pallur liggur umhverfis húsið.