Segja ástand Axarvegar óviðunandi og fjármagn skorta til viðhalds
Heimastjórn Djúpavogs lýsir yfir óánægju með ástand Axarvegar og bendir á fjárskort til viðhalds. Sveitarstjóri Múlaþings telur fjármagn til vegaviðhalds á Austurlandi allt of lítið.
Heimastjórn Djúpavogs telur viðhald og þjónustu við Axarveg vera í algjöru ólestri. Sveitarstjóri Múlaþings, Dagmar Ýr Stefánsdóttir, segir fjármagn til vegaviðhalds á Austurlandi allt of lítið og að það sé ekki starfsfólki Vegagerðarinnar að kenna. „Þeir hafa bara ekki það fjármagn sem þarf til að sinna vel viðhaldi vega hér, það er alveg ljóst,“ segir hún.
Austfirðingar hafa lýst vonbrigðum með fáar áætlaðar nýframkvæmdir í landshlutanum í nýrri samgönguáætlun. Dagmar Ýr bendir á að ef ekki eigi að hefja nýjar framkvæmdir, ætti að setja meira fjármagn í viðhald eldri vega, eins og Axarvegar, sveitavega og Fjarðarheiðar. Hún tekur undir bókun heimastjórnar Djúpavogs frá síðustu viku þar sem ástand Axarvegar er sagt óviðunandi, vegurinn óheflaður og skorti ofaníburð.
Axarvegur, sem liggur milli Djúpavogs og Egilsstaða, er víða grófur og holóttur. Dagmar Ýr segir það mikla synd að vegurinn sé í þessu ástandi þar sem það hægi á ferðum fólks. Hún leggur áherslu á mikilvægi þess að bæta ástand vegarins, sérstaklega í ljósi mikillar sumarumferðar. „Við erum að velta því fyrir okkur hvort það eigi að bjóða okkur öllum, bæði heimamönnum og öllum þessum fjölda ferðamanna sem er að nota veginn í sumar, upp á að keyra hann í þessu ástandi það sem eftir lifir sumars,“ segir hún og bendir á að gott veður sé nú á svæðinu.
Heimild: RÚV