Seðlabankinn á villigötum, heimatilbúin verðbólga og hækkanir umfram samkomulag

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, voru gestir í fyrsta hluta Vikulokanna á Rás 2 í morgun. Þar ræddu þeir

Seðlabankinn á villigötum, heimatilbúin verðbólga og hækkanir umfram samkomulag
Mynd: pixabay.com / Pexels

Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, voru gestir í fyrsta hluta Vikulokanna á Rás 2 í morgun. Þar ræddu þeir um stýrivaxtahækkun Seðlabankans í liðinni viku og kjaramál.Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækkaði stýrivexti um 0,25 prósentustig á miðvikudaginn. Þeir eru nú 8 prósent. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði í Kastljósi á fimmtudag að hans trú væri að nú væri toppnum náð og að verðbólga hjaðni á næstu misserum.Í Vikulokunum tók Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, undir orð ráðherra um að líklega verði verðbólga minni á næstunni. Vonbrigðin séu þó falin í því að hún hafi verið komin undir fjögur prósent fyrir ári síðan.Heimatilbúin verðbólga með hækkunum„Í millitíðinni hefur eitt og annað gerst. Meðal annars höfum við búið til verðbólgu með vörugjaldahækkunum og gjaldskrárbreytingum og ef við tökum bara til hliðar áhrif af slíkum aðgerðum þá munar þannig um þær að þær setja kjarasamningana í þá stöðu að forsenduákvæðið virkjast,“ sagði hann.„Ef ekki hefði komið til þessara hækkana værum við líklega innan vikmarka kjarasamninganna,“ segir Bjarni. Að vextir séu eins háir og hér, og í eins langan tíma, sé alvarlegt mál.Í rökstuðningi peningastefnunefndar vegna stýrivaxtahækkunarinnar segir meðal annars að litið sé til hækkunar opinberra gjalda.Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir áhugavert að skautað sé fram hjá þeim lið sem hefur hvað mest áhrif á vísitölu, húsnæðisliðnum – sér í lagi leiguhúsnæði.„Ég tel að Seðlabankinn sé kominn á algerar villigötur þegar kemur að peningastefnu og þessum ákvörðunum og sömuleiðis að hann sé kominn í algjöran vítahring. Beinir spjótum sínum núna, í þessari ákvörðun, að verkalýðshreyfingunni, launahækkunum og opinberum gjöldum,“ segir Ragnar Þór.„Ef við skoðum tölurnar og samsetningu vísitölu að þá hafa hækkanir á opinberum gjöldum ekki verið umfram, eða ekki mikið umfram, það sem hefur verið síðustu ár,“ segir Ragnar. Bregðast þurfi við með því að auka framboð á hagkvæmum íbúðum.Engar forsendur fyrir stýrivaxtahækkuninniÍ rökstuðningnum segir einnig að litið sé til launahækkana. Finnbjörn Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands segir stýrivaxtahækkunina mikil vonbrigði.„Það eru engar forsendur fyrir hækkun á stýrivöxtum miðað við stöðuna í efnahagsmálum. Undirliggjandi verðbólga er frekar að hjaðna ef eitthvað er í mörgum liðum. Einkaneysla sé ekki að mælast inn í verðbólgu og yfirleitt sé verið að berjast við hana með stýrivaxtahækkunum,“ segir Finnbjörn.Hækkanir opinberra gjalda ekki það sem samið var um fyrir tveimur árum„En varðandi það sem Ragnar nefnir varðandi hækkanir opinberra gjalda, að það sé ekki umfram síðustu ár, það getur verið að það sé rétt. En samkomulagið sem við gerðum við ríkisstjórnina 2024 það var um það að draga úr hækkunum og vera ekki eins og síðustu ár.“Við ætluðum að vera á verðbólgumarkmiðum Seðlabankans en mjög margir þættir sem spila inn í vísitöluna hafa farið langt umfram það, segir Finnbjörn.Þetta var hluti umræðunnar í fyrsta hluta Vikulokanna á Rás 2 í morgun. Hlusta má á þáttinn í heild í spilaranum hér að neðan.Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, forseti Alþýðusambands Íslands og félags- og húsnæðismálaráðherra voru gestir í fyrsta hluta Vikulokanna í morgun. Stýrivaxtahækkun og kjaramál voru á meðal þess sem tekist var á um.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn