Samþykkja unglingaskóla í Ármúla
Borgarráð samþykkti í gær nýtt deiliskipulag fyrir lóðina við Ármúla 28-30 til að þar sé hægt að starfrækja grunnskóla á unglingastigi.Fulltrúar flestra flokka bókuðu og lýstu ánægju sinni en komu hver með sína athugasemd.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæ
Borgarráð samþykkti í gær nýtt deiliskipulag fyrir lóðina við Ármúla 28-30 til að þar sé hægt að starfrækja grunnskóla á unglingastigi.Fulltrúar flestra flokka bókuðu og lýstu ánægju sinni en komu hver með sína athugasemd.Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins lýstu þeirri von að nýi skólinn kæmist vonandi hratt og örugglega í notkun. Þeir sögðu mikilvægt að huga að öruggum samgöngum að skólanum „enda eru börn á þessum aldri að jafnaði sjálfstæð í ferðum sínum til og frá skóla og fara oftast gangandi eða hjólandi“.Borgarfulltrúar Samfylkingarinnar fögnuðu stóru skrefi í að breyta Ármúla í líflega og fjölbreytta borgargötu og eflingu skólaframboðs og nærþjónustu í Múlunum og Skeifunni. Þau fundu þó að því að tillagan hefði ekki fengið efnislega umfjöllun eða stefnumótun og að skort hefði á raunverulegt virkt samráð við fagaðila, kennara, foreldra og íbúa.Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins fagnaði því að brugðist væri við þörfum stækkandi hóps ungmenna í hverfinu en sagði að verið væri að „stíga skref í átt að óæskilegu fyrirkomulagi þar sem langtímaleigusamningur er gerður við einkafyrirtæki sem heldur eignarrétti yfir sjálfri skólabyggingunni“. Þá benti fulltrúinn á að aðeins væru 17 bílastæði fyrir 45 starfsmenn.
Heimild: RÚV