Samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða

Garðabær hefur ásamt Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ, auk mennta- og barnamálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins, undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgar

Samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða
Mynd: Braggi.is

Garðabær hefur ásamt Reykjavíkurborg, Kópavogsbæ, Hafnarfjarðarkaupstað, Mosfellsbæ og Seltjarnarnesbæ, auk mennta- og barnamálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins, undirritað viljayfirlýsingu um samstarf um uppbyggingu sérskólaúrræða á höfuðborgarsvæðinu. Markmið samstarfsins er að tryggja að börn með sérskólaþarfir fái þjónustu sem styður við farsæld þeirra, virkni og menntun.

Viljayfirlýsingin byggir á greiningu sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) um fýsileika aukins samstarfs sveitarfélaga og ríkisins um sérskólaúrræði. Niðurstöður greiningarinnar sýna að samstarfið sé raunhæft og að með samstilltu átaki sé hægt að byggja upp öflug og fjölbreytt úrræði fyrir börn með ólíkar stuðningsþarfir.

Í samstarfinu verður horft til uppbyggingar langtímasérskólaúrræða fyrir börn með langtímasérskólaþarfir, fjölbreyttra skammtímaúrræða og einnig til eflingar sérdeilda innan almennra grunnskóla. Skipaður verður sameiginlegur stýrihópur sveitarfélaganna og mennta- og barnamálaráðuneytisins sem mun móta tillögur að framtíðarskipan úrræðanna. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum fyrir lok árs 2026.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Garðabær

Heimild: Garðabær

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →