Samningur við Eflu um gerð umferðaröryggisáætlunar
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur falið sviðsstjóra að taka tilboði frá verkfræðistofunni Eflu um gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið. Kostnaður við verkefnið nemur 4 milljónum króna.
Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings hefur samþykkt tilboð frá verkfræðistofunni Eflu um gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir sveitarfélagið.
Tilboð Eflu hljóðar upp á 4 milljónir króna og var því falið sviðsstjóra að vinna viðauka við fjárhagsáætlun til að mæta þessum kostnaði.
Á sama fundi var einnig fjallað um erindi frá stjórn Leikfélags Húsavíkur varðandi endurbóta- og viðhaldsáætlun fyrir Samkomuhúsið að Garðarsbraut 22. Ráðið felur sviðsstjóra að fá tilboð í heildarúttekt á ástandi hússins, með sérstöku tilliti til burðarþols.
Þá var lagt fram til kynningar starf og helstu verkefni skipulags- og umhverfissviðs.
Heimild: Fundargerð Norðurþing