Samið um stöðvar og steinefni fyrir Borgarlínu

Betri samgöngur hafa gert tvo mikilvæga samninga vegna uppbyggingar Borgarlínu, annars vegar um framleiðslu og afhendingu á 26 stöðvum og hins vegar um kaup á steinefnum. Heildarsamningsverð fyrir fyrstu lotu er um 10,25 milljónir evra án virðisaukaskatts.

Samið um stöðvar og steinefni fyrir Borgarlínu
Mynd: flickr / CC BY-SA / Pexels

Betri samgöngur hafa gert tvo mikilvæga efniskaupasamninga vegna uppbyggingar fyrstu lotu Borgarlínu. Samningarnir snúa að framleiðslu og afhendingu á 26 Borgarlínustöðvum og kaupum á steinefnum.

Heildarsamningsverð vegna fyrstu lotu er um 10,25 milljónir evra án virðisaukaskatts, eða tæpur einn og hálfur milljarður íslenskra króna. Steinefnin verða meðal annars notuð við stöðvar, brautarpalla og í aðliggjandi almenningsrýmum.

Innkaupin voru boðin út á evrópska efnahagssvæðinu. Þrjú tilboð bárust í framleiðslu og afhendingu á Borgarlínustöðvum, en útboðið var auglýst í maí. Tvö tilboð bárust í granít og önnur steinefni, en það útboð var auglýst í mars.

Báðir samningarnir sem gerðir voru í kjölfarið reyndust nokkuð undir kostnaðaráætlun. Atli Björn Levy, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu, segir að samningarnir séu mikilvægt skref í undirbúningi fyrstu lotu Borgarlínu og tryggi að framleiðsla og afhending geti fylgt framkvæmdaáætlun verkefnisins.

Samið var við danska fyrirtækið HSM Industri A/S um framleiðslu og afhendingu á 26 stöðvum fyrir fyrstu lotu Borgarlínu. Hver stöð samanstendur af tveimur fullbúnum brautarpöllum, einum fyrir hvora akstursstefnu. Samningsverð stöðvanna fyrir fyrstu lotu er tæplega 7,8 milljónir evra án virðisaukaskatts, eða um 1,1 milljarður króna.

Tilboð HSM Industri nam aðeins 73% af kostnaðaráætlun. Fyrirtækið hefur áður afhent 29 stöðvar fyrir léttlestarkerfið í Kaupmannahöfn. Samningurinn við HSM Industri nær til burðarvirkja stöðvanna og þess búnaðar og efnis sem þeim tilheyrir.

Fyrirtækið mun jafnframt setja upp fyrstu stöðina í Reykjavík, sem verður viðmiðunarstöð fyrir áframhaldandi framleiðslu og afhendingu. Staðsetning fyrir viðmiðunarstöð hefur ekki verið ákveðin en líklegt er að hún verði á Nauthólsvegi við Háskólann í Reykjavík.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Borgarlínan

Heimild: Borgarlínan

Deila Facebook X LinkedIn