Samið um neysluvatnsrannsóknir í norðurhlíðum Akrafjalls
Veitur hafa undirritað samkomulag um rannsóknir á vatnstökumöguleikum í landi Bekansstaða, Hvítaness og Arkarlækjar í Hvalfjarðarsveit. Samkomulagið, sem er til fimm ára, felur í sér rannsóknir á því hvort nýtanlegt magn af góðu neysluvatni sé til st
Veitur hafa undirritað samkomulag um rannsóknir á vatnstökumöguleikum í landi Bekansstaða, Hvítaness og Arkarlækjar í Hvalfjarðarsveit. Samkomulagið, sem er til fimm ára, felur í sér rannsóknir á því hvort nýtanlegt magn af góðu neysluvatni sé til staðar í norðurhlíðum Akrafjalls.
Fyrstu skrefin í rannsóknunum munu felast í borunum ofan lindasvæðanna til að kanna hvort unnt sé að vinna vatn með borholum. Með þessari aðferð er mögulega hægt að nýta betur vatn sem annars rynni fram sem grunnvatn. Markmiðið er að vinna neysluvatn frá svæðunum til að mæta þörfum vaxandi samfélags á Akranesi og þeim hluta Hvalfjarðarsveitar sem tengdur er veitunni.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Skessuhorn
Heimild: Skessuhorn