Samdráttur í losun hjá ON meiri en heildarsamdráttur jarðvarmavirkjana
Samdráttur í losun frá virkjunum ON var meiri en samanlagður samdráttur frá öllum jarðvarmavirkjunum landsins. Aukin föngun jarðhitalofttegunda hjá ON á þar stóran þátt, sérstaklega með Steingerði á Hellisheiði.
Samdráttur í losun frá virkjunum ON nam um 9.200 tonnum milli ára, sem er meira en samanlagður samdráttur frá öllum jarðvarmavirkjunum landsins. Þessi árangur er að miklu leyti rakinn til aukinnar föngunar jarðhitalofttegunda hjá ON.
Á Hellisheiði hefur verið unnið markvisst að því að draga úr losun með Steingerði, nýrri lofthreinsistöð sem fangar bæði koldíoxíð (CO₂) og brennisteinsvetni (H₂S). Steingerður er hluti af áframhaldandi þróun á Hellisheiði sem byggir á reynslu af föngun og niðurdælingu í samstarfi við Carbfix.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, segir ánægjulegt að sjá samdrátt í losun og árangur í eigin starfsemi. Hann leggur áherslu á að halda áfram að draga úr losun og nýta jarðvarma á ábyrgan hátt.
Heimild: on.is