Salan góð á Heklureit – Alma kaupir fjölda íbúða

Mynd gerð með gervigreind (AI)
Mynd gerð með gervigreind (AI)

Um helmingur af þeim hundrað íbúðum sem boðnar eru til sölu í öðrum áfanga Heklureits, við Laugaveg 170, hefur þegar verið seldur. Leigufélagið Alma hefur fest kaup á mörgum af smærri íbúðunum í áfanganum, en alls eru um 100 íbúðir seldar í fyrstu tveimur áföngunum á reitnum.

Kynning á öðrum áfanganum hófst með sölu á dýrari þakíbúðum, en verð þeirra er á bilinu 169 til 299 milljónir króna. Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri félagsins sem sér um uppbygginguna, segir að hraði framkvæmda muni taka mið af efnahagsástandinu hverju sinni. Gert er ráð fyrir að Heklureitur verði fullbyggður um og eftir árið 2030, en næsti áfangi felur í sér niðurrif Hekluhússins.

Sjá nánar: mbl.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →