Sæbrautarstokkur í auglýsingu
Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur hefur samþykkt að senda tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Sæbrautarstokk í auglýsingu, sem markar mikilvægan áfanga í stóru innviðaverkefni á höfuðborgarsvæðinu. Verkefnið miðar að því að bæta umferðaröryggi, draga úr hávaða og styrkja tengingar milli hverfa.
Fyrirhugað er að stokkurinn verði um eins kílómetra langur á Sæbraut, frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs. Ofan á norðurhluta stokksins verða byggð ný gatnamót við Kleppsmýrarveg/Skeiðarvog. Inni í stokknum verða tvær akreinar í hvora átt, auk blöndunarreina og neyðarvasa til að uppfylla öryggiskröfur.
Með framkvæmdinni skapast tækifæri til að þróa nýtt grænt borgarrými yfir mannvirkinu, með göngu- og hjólastígum sem tengja nærliggjandi hverfi. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við Sæbrautarstokk hefjist á árunum 2027 og ljúki árið 2030. Verkefnið er hluti af Samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins og hefur verið unnið í samstarfi við Vegagerðina og Betri samgöngur. Eftir staðfestingu borgarráðs mun tillagan verða auglýst í skipulagsgátt þar sem almenningi gefst kostur á að kynna sér hana og gera athugasemdir.
Sjá nánar: reykjavik.is