SA og ASÍ sammála um að ríkisstjórnin verði að axla ábyrgð
Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands kalla eftir því að ríkisstjórnin axli ábyrgð á að ná niður vöxtum og halda aftur af útgjöldum. Bæði samtökin lýsa vonbrigðum með aukna verðbólgu.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Finnbjörn A. Hermannsson, forseti Alþýðusambands Íslands, eru sammála um að stjórnvöld verði að axla ábyrgð á að ná niður vöxtum og halda aftur af útgjöldum ríkisins. Þeir telja langæskilegast að samningsaðilar setjist niður og reyni að koma í veg fyrir uppsögn kjarasamninga. Bæði viðtölin eru að finna í heild sinni neðar í þessari frétt.
Verðbólga jókst úr 3,7% í lok nóvember í fyrra í 5,3% í lok júlí. Kjarasamningum, sem undirritaðir voru í mars 2024, gæti verið sagt upp ef verðbólga mælist ekki lægri en 4,7% í næsta mánuði. Fátt bendir til þess að það náist.
Bæði Bjarni og Finnbjörn lýsa vonbrigðum með aukna verðbólgu. „Vegna forsendubrestsins þurfum við að setjast niður saman, samningsaðilarnir, og láta á það reyna hvort við erum sammála um framhaldið og hvort við getum sammælst um að aðstæður eru til staðar til að láta samningana lifa út samningstímann. Það tel ég vera langæskilegast,“ segir Bjarni Benediktsson.
Hann bendir á að laun hafi hækkað meira en reiknað var með í kjarasamningunum. „Við þessar aðstæður þarf að halda áfram verkefninu við að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það er ennþá verkefnið. Til þess þarf ríkið og hið opinbera að halda aftur af sér og gefa svigrúm og súrefni. Súrefni fæst ekki með hærri sköttum. Súrefni fæst ekki með því að setja útgjöld ríkisins á sjálfvirkni, eins og menn hafa verið að gera til dæmis í almannatryggingum.“
Það verði að leggja áherslu á að einfalda regluverk.
Heimild: RÚV