Rýnihópur skipaður um stúkubyggingu að Varmá
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur skipað rýnihóp til að vinna þarfagreiningu fyrir fyrirhugaða stúkubyggingu við aðalknattspyrnuvöllinn að Varmá. Markmið hópsins er að greina þarfir, móta hönnunarforsendur og meta kostnað.
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur skipað rýnihóp til að vinna þarfagreiningu fyrir fyrirhugaða stúkubyggingu við aðalknattspyrnuvöllinn að Varmá. Markmið hópsins er að greina þarfir fyrir bygginguna, móta hönnunarforsendur og meta stofn- og rekstrarkostnað.
Rýnihópurinn mun byggja á fyrri vinnu vegna þarfagreiningar fyrir þjónustu- og aðkomubyggingu á svæðinu, auk þess að afla nýrra upplýsinga og kalla eftir sjónarmiðum notenda. Einnig verður horft til nýlegra stúkubygginga annars staðar og reynslu af þeirra undirbúningi og framkvæmd.
Meðal þess sem hópurinn mun skoða eru fjöldi áhorfendasæta, stærð byggingar, aðgengi, búningsklefar, aðstaða vegna keppnishalds samkvæmt kröfum KSÍ, möguleg áfangaskipting framkvæmdarinnar, stofn- og rekstrarkostnaður og samnýtingarmöguleikar húsnæðis.
Niðurstaða vinnunnar verður þarfagreining með tillögum að helstu hönnunarforsendum stúkubyggingarinnar, þar sem einnig verður fjallað um mögulega áfangaskiptingu og hvernig nýta megi bygginguna sem best fyrir knattspyrnu, frjálsar íþróttir og aðra starfsemi.
Fulltrúar Mosfellsbæjar og Aftureldingar munu skipa rýnihópinn. Vinna við gerð frjálsíþróttavallar að Varmá er að ljúka og nýi gervigrasvöllurinn fékk FIFA vottun í sumar. Stúkubyggingin er næsta verkefni á íþróttasvæðinu að Varmá, en vinna við samningagerð vegna þjónustu- og aðkomubyggingar lýkur í september.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Mosfellsbær
Heimild: Mosfellsbær