Nýtt Hafnarhús byggt í Sundahöfn
Stjórn Faxaflóahafna hefur falið Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra að vinna að áformum um byggingu nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins. Nýtt Hafnarhús mun rísa á lóð við Skarfabakka í Sundahöfn, við norðurenda bakkans. Þar verður starfsemi sem í dag fer f
Stjórn Faxaflóahafna hefur falið Gunnari Tryggvasyni hafnarstjóra að vinna að áformum um byggingu nýrra höfuðstöðva fyrirtækisins. Nýtt Hafnarhús mun rísa á lóð við Skarfabakka í Sundahöfn, við norðurenda bakkans. Þar verður starfsemi sem í dag fer fram í Hafnarhúsi við Tryggvagötu og Bækistöð við Fiskislóð sameinuð undir eitt þak. Með þessu yrði svæðið við norðurenda Skarfabakka að heimatorfu Faxaflóahafna, þar sem Hafnarhúsið, farþegamiðstöðin Vör og dráttarbátafloti fyrirtækisins yrðu í návígi. Markmiðið með nýbyggingunni er að auka skilvirkni og hagkvæmni í rekstri Faxaflóahafna.
Faxaflóahafnir munu gera tillögu að breytingu deiliskipulags og hefja undirbúning við útboð hönnunar. Stefnt er að því að samningur um hönnun komi til afgreiðslu stjórnar um næstu áramót. Guðrún Jónsdóttir og Þráinn Fannar Gunnarsson, ráðgjafar frá verkfræðistofunni Eflu, kynntu niðurstöður skýrslu um þarfagreiningar fyrir nýtt hafnarhús, staðarval og tillögur að næstu skrefum á stjórnarfundi Faxaflóahafna 22. apríl. Í byrjun mánaðarins var farþegamiðstöðin Vör tekin í notkun á Skarfabakka. Hún er 5.700 fermetrar að stærð og er fyrsta farþegamiðstöðin hérlendis sem sérhæfir sig í þjónustu við farþega skemmtiferðaskipa.
→ Lesa upprunaleg frétt á Morgunblaðið-Innlent
Heimild: Morgunblaðið-Innlent