Rotþrær þurfa að vera aðgengilegar !
Reglubundin hreinsun rotþróa á vegum UTU er nú í gangi á starfssvæði aðildarsveitarfélaganna, þar á meðal í Hrunamannahreppi. Íbúar eru hvattir til að tryggja aðgengi að rotþróm til að auðvelda hreinsunaraðilum starf sitt. Mikilvægt er að rotþrær sé
Reglubundin hreinsun rotþróa á vegum UTU er nú í gangi á starfssvæði aðildarsveitarfélaganna, þar á meðal í Hrunamannahreppi. Íbúar eru hvattir til að tryggja aðgengi að rotþróm til að auðvelda hreinsunaraðilum starf sitt.
Mikilvægt er að rotþrær séu aðgengilegar, stútar sýnilegir upp úr jörðinni og vel merktir. Hreinsibílar, sem eru 20-30 tonna vörubílar, þurfa að geta komist í allt að 30 metra fjarlægð frá þrónni. Ef fjarlægðin fer yfir 50 metra er ekki hægt að hreinsa þróna. Einnig þarf að grisja gróður sem hindrar leið að þró og hreinsa gróður frá stútum. Stútar á rotþróm eiga að lágmarki að vera 110 mm í þvermál.
Eigendur þurfa að tryggja að hreinsibifreið komi ekki að lokuðu hliði og að hlið sé nógu stórt fyrir stóran bíl. Aðgangsupplýsingar um hlið eða aðrar hindranir skal senda á seyra@seyra.is eða í síma 4805550. Ef rotþró er staðsett í gripagirðingu með rafmagni þarf að vera gönguhlið til staðar. Einnig þarf að gæta þess að trjágreinar slúti ekki yfir heimreið. Hægt er að skoða framvindu hreinsana og upplýsingar um rotþrær á kortasjá UTU undir veitur – fráveita – rotþrær.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Hrunamannahreppur
Heimild: Hrunamannahreppur