Rof á ljósleiðarasambandi í Vatnsdal á morgun fimmtudaginn 6. ágúst!
Ljósleiðarasamband og símasamband falla niður í vestanverðum Vatnsdal á morgun, fimmtudaginn 6. ágúst, vegna tengingar nýrrar ljósleiðaralagnar.
Vegna tengingar nýrrar ljósleiðaralagnar í Vatnsdal verður ljósleiðarasamband rofið á morgun, fimmtudaginn 6. ágúst, frá klukkan 9:00 í vestanverðum Vatnsdal.
Framkvæmdin felur í sér tengingu nýrrar ljósleiðaralagnar sem lögð hefur verið frá Þórdísarlundi að Flögu. Þetta er gert í tengslum við framkvæmdir Vegagerðarinnar við nýjan veg.
Reiknað er með að verkinu ljúki um klukkan 14:00 og að fyrstu samböndin komi inn um klukkan 10:30.
Á meðan tengivinna stendur yfir mun símasamband einnig falla niður, þar sem rofið hefur áhrif á fjarskiptamöstur.
→ Lesa upprunaleg frétt á vef Húnabyggð
Heimild: Húnabyggð