Uppbygging 260 íbúða á Völlunum mætir andstöðu íbúa
Hafnarfjarðarbær hefur tilkynnt um áform um að reisa 130 húseiningar með 260 íbúðum fyrir tímabundna búsetu á um 10 hektara svæði við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg í Vallahverfinu. Íbúðirnar eru ætlaðar starfsfólki í verkefnatengdri vinnu og hefur samkomulag verið gert við félagið Sty
Hafnarfjarðarbær hefur tilkynnt um áform um að reisa 130 húseiningar með 260 íbúðum fyrir tímabundna búsetu á um 10 hektara svæði við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarvatnsveg í Vallahverfinu. Íbúðirnar eru ætlaðar starfsfólki í verkefnatengdri vinnu og hefur samkomulag verið gert við félagið Styrkás Fasteignir um uppbygginguna.
Húsin verða reist í tveimur áföngum og eru um að ræða 35 fermetra einingarbyggingar, hannaðar af Batteríinu Arkitektum með lausnum frá tékknesku fyrirtæki. Fyrstu byggingarnar eiga að vera fullbúnar á seinni hluta ársins 2027.
Fyrirætlanirnar hafa mætt mikilli andstöðu hjá íbúum á Völlunum. Undirskriftalisti gegn verkefninu hefur verið stofnaður á island.is og hafa rúmlega 350 manns skrifað undir. Íbúar lýsa áhyggjum af því að byggðin muni breyta eðli hverfisins og skerða óbyggt hraun og aðkomu að Hvaleyrarvatni.
Íbúar mótmæla staðsetningunni og fara fram á íbúafund og að bærinn meti aðrar staðsetningar áður en ákvörðun er tekin, þar sem samkomulagið var gert án samráðs við þá. Þeir benda á að lóðarleigusamningar séu til 10 ára með möguleika á framlengingu og að framkvæmdaaðilinn fái rétt til að byggja varanlegt íbúðarhúsnæði á svæðinu síðar.