Ríflega 2000 undirskriftir komnar til bjargar Kristnesi

Yfir 2.200 manns hafa skrifað undir áskorun þar sem mótmælt er flutningi endurhæfingarstarfsemi frá Kristnesi í Eyjafirði til Akureyrar. Áhyggjur eru af framtíð húsnæðisins á Kristnesi vegna þörf á viðgerðum.

Ríflega 2000 undirskriftir komnar til bjargar Kristnesi
Mynd: needpix.com (CC0)

Starfsmenn og notendur endurhæfingarþjónustunnar á Kristnesi í Eyjafirði eru ósáttir við fyrirhugaðan flutning starfseminnar til Akureyrar. Óvissa ríkir um framtíð húsnæðisins á Kristnesi, en þörf er á miklum viðgerðum á ónýtum húsakosti.

„Fyrst og fremst finnst mér bara galið að færa endurhæfinguna inn til Akureyrar. Þarna er heilunarmáttur umhverfisins gríðarlegur og búið að byggja sundlaug og allt til alls. Mér finnst alveg einbúið að gera við þetta hús og halda starfseminni áfram,“ segir María Pálsdóttir, ábyrgðarkona undirskriftalistans á Ísland.is. Hún hefur safnað yfir 2.200 undirskriftum og stefnir á 5.000 til að ná eyrum stjórnvalda. María segir að unnið sé að því að safna liði og gera meira til að vekja athygli á málinu.

Heilbrigðisráðuneytið bíður niðurstaðna. Ákveðið var þann 16. júní að flytja alla starfsemi frá Kristnesi til Akureyrar. Samkvæmt upplýsingum á Akureyri.net hefur heilbrigðisráðuneytið bent á að verulegra úrbóta sé þörf á núverandi húsnæði. Engar framkvæmdir eru hafnar enda ekki talið ráðlegt að hefja þær fyrr en niðurstöður liggja fyrir um framtíðarnýtingu húsnæðisins og starfseminnar.

„Við bara verðum að standa vörð um þetta og við verðum að sýna samtakamátt. Við getum ekki látið svona hluti gerast. Þetta er náttúrulega vanræksla á viðhaldi áratugum saman, þannig að skömmin er okkar, þú veist, þjóðarinnar og ríkisins að leyfa þessu að gerast,“ segir María Pálsdóttir.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →