Reykjanesbær býður út innanhúss glerveggjakerfi fyrir Tjarnargötu 12
Reykjanesbær býður út hönnunarstýringu, afhendingu, uppsetningu og fullnaðarfrágang á innanhúss glerveggjakerfi fyrir Tjarnargötu 12, með skilafresti til 27. maí 2026.
Reykjanesbær hefur auglýst útboð nr. 31_26-001, „Tjarnargata 12 – Innanhúss Glerveggjakerfi“. Verkið felur í sér hönnunarstýringu, afhendingu, uppsetningu og fullnaðarfrágang á innanhúss glerveggjakerfi með álprófílum. Kerfið skal sérstaklega hannað fyrir skrifstofurými þar sem gerðar eru ríkar kröfur um hljóðvist, brunavarnir, gæði, endingu, efniskröfur og útlit.
Efnisval skal vera EN AW-6060 T6 með yfirborðsmeðhöndlun upp á 60–80 μm. Glerveggjakerfið skal vera vottuð og iðnaðarframleidd heildarlausn með samþættum kerfishlutum, þar á meðal lóðréttum og láréttum prófílum ásamt T-listum/millistykkjum milli glerja.
Útboðsgögn voru afhent 6. maí 2026 kl. 11:00. Skilafrestur tilboða er 27. maí 2026 kl. 13:00 og opnun tilboða fer fram 27. maí 2026 kl. 13:05. Áætluð lok framkvæmdatíma eru 10. október 2026. Ef bjóðandi óskar eftir vettvangsskoðun skal hafa samband við innkaupastjóra Reykjanesbæjar í gegnum útboðsvef Reykjanesbæjar frá kl. 12:00 þann 6. maí 2026.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is