Rekstur Hellisheiðarvirkjunar og framtíðarhorfur
Óskar Gunnarsson, deildarstjóri framleiðslu í Hellisheiðarvirkjun, ræðir í nýjasta þætti hlaðvarpsins Orkan í náttúrunni um daglegt líf og þróun rekstrar virkjunarinnar. Hann sér bjarta framtíð fyrir Hellisheiðarvirkjun og telur að hún muni halda áfram að keyra næstu tuttugu árin.
Óskar Gunnarsson, deildarstjóri framleiðslu í Hellisheiðarvirkjun, hefur starfað við virkjunina frá árinu 2005. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Orkan í náttúrunni ræðir hann við Árna Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóra Orku náttúrunnar, um daglegt líf og þróun rekstrar Hellisheiðarvirkjunar.
Óskar kemur inn á hvernig vinnslan hefur orðið markvissari í gegnum árin og hvernig aukin áhersla er lögð á að nýta auðlindina sem best. Hann nefnir að fjölbreytt verkefni og stöðug úrlausnarefni geri starfið skemmtilegt og að rekstur jarðvarmavirkjunar sé fyrst og fremst öflug teymisvinna.
Óskar sér bjarta framtíð fyrir virkjunina og telur að hún muni halda áfram að keyra næstu tuttugu árin, sérstaklega ef áfram verður haldið að bora og afla meiri orku, auk þess sem fleiri afurðir munu koma til.
Heimild: on.is