Rarik óskar eftir tilboðum í dælustöð og lokahús hitaveitu í Dalabyggð

Rarik óskar eftir tilboðum í byggingu á nýjum hitaveitumannvirkjum í Dalabyggð, sem felur í sér lokahús og dælustöð. Verkið nær til jarðvinnu, uppsteypu, stálvirkis, timburgrinda, frárennslislagna, raflagna og frágangs.

Rarik óskar eftir tilboðum í dælustöð og lokahús hitaveitu í Dalabyggð
Mynd: Pexels / Budget Bizar

Rarik ohf. óskar eftir tilboðum í verkið Dælustöð og lokahús hitaveitu í Dalabyggð, númer RARIK 26021. Verkið felur í sér byggingu á nýjum hitaveitumannvirkjum í Dalabyggð. Annars vegar er um að ræða lokahús við Ásuhvamm í Búðardal, 13,8 m² að stærð, og hins vegar dælustöð í landi Lands og Skógs við Laxaborg í Dalabyggð, 44,5 m² að stærð.

Verkið nær til aðstöðusköpunar, jarðvinnu, uppsteypu og mótunar burðarvirkja, smíði og uppsetningar stálvirkis, timburgrinda og annarra timburhluta. Einnig felur verkið í sér frárennslislagnir, raflagnir, lágspennudreifingu, lýsingu, ljósastýringu, smáspennukerfi og tengingar við tæknibúnað mannvirkjanna. Loftræsikerfi og allur nauðsynlegur innanhúss- og utanhússfrágangur, þar með talið klæðningar, málun, gólfmeðferð, þakfrágangur, blikksmíði, þakrennur og niðurföll, er einnig hluti af verkinu.

→ Skoða útboð hjá Rarik

Heimild: utbod.rarik.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →