Rarik óskar eftir tilboðum í byggingu rofahúss á Hvolsvelli

Rarik óskar eftir tilboðum í verkið Rofahús Hvolsvelli, sem felur í sér byggingu nýs rofahúss á lóð fyrirtækisins við Hvolsvöll.

Rarik óskar eftir tilboðum í byggingu rofahúss á Hvolsvelli
Mynd: Pexels / David Elvar Masson

Rarik ohf. óskar eftir tilboðum í verkið Rofahús Hvolsvelli, með tilvísunarnúmerið RARIK 26022. Í verkinu felst bygging á nýju rofahúsi fyrir Rarik við Hvolsvöll, á lóð fyrirtækisins þar sem núverandi aðveitustöð er.

Um er að ræða einangraða byggingu á tveimur hæðum með lagnaleiðum í kjallara. Stærð hússins er 102,7 m² brúttó, mesta hæð um 7,3 m frá kjallaragólfi. Rarik leggur til forsteyptar einingar í alla útveggi og í hluta innveggja, bæði í kjallara og á jarðhæð.

→ Skoða útboð hjá Rarik

Heimild: utbod.rarik.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →