RARIK býður út strenglögn og uppsetningu á Jökuldal á Austurlandi
RARIK býður út plægingarverkefni ásamt uppsetningu jarðspennistöðva og strengskápa í Jökuldal á Austurlandi, sem skal unnið frá 23. júní til 30. september 2026.
RARIK hefur auglýst útboðsnúmer 26013, sem er strenglögn í Jökuldal 2 á Austurlandi. Um er að ræða plægingarverkefni, ásamt uppsetningu jarðspennistöðva og strengskápa. Verkið nær frá Gauksstöðum (á móti Skjöldólfsstöðum) í Grund á Jökuldal.
Verkið skal unnið á tímabilinu frá 23. júní til 30. september 2026. Útboðsgögn verða afhent frá og með 8. maí 2026 kl. 00:00. Skilafrestur tilboða er 8. júní 2026 kl. 15:30. Tilboðum skal skilað inn með rafrænum hætti á útboðsvef RARIK. Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi. Útboðsgögn og allar frekari upplýsingar má finna á útboðsvef RARIK.
Útboðið er birt á: utbodsvefur.is