RARIK 26021 – DÆLUSTÖÐ OG LOKAHÚS HITAVEITU Í DALABYGGÐ

RARIK óskar eftir tilboðum í byggingu á nýjum hitaveitumannvirkjum í Dalabyggð, með skilafresti 19. júní 2026 kl. 11:00.

RARIK 26021 – DÆLUSTÖÐ OG LOKAHÚS HITAVEITU Í DALABYGGÐ
Mynd: Mumtaz Niazi / Pexels

RARIK ohf. óskar eftir tilboðum í útboðsverk nr. 26021 – DÆLUSTÖÐ OG LOKAHÚS HITAVEITU Í DALABYGGÐ. Í verkinu felst bygging á nýjum hitaveitumannvirkjum fyrir verkkaupa í Dalabyggð. Annars vegar er um að ræða lokahús við Ásuhvamm í Búðardal og hins vegar dælustöð í landi Lands og Skógs við Laxaborg í Dalabyggð. Um er að ræða einangraðar byggingar fyrir hitaveitubúnað. Stærð lokahússins er 13,8 m² brúttó og dælustöðvarinnar er 44,5 m² brúttó.

Verkið nær meðal annars til aðstöðusköpunar og jarðvinnu, uppsteypu og mótunar burðarvirkja, smíði og uppsetningar stálvirkis, timburgrinda, sýnilegra sperra og annarra timburhluta samkvæmt teikningum og verklýsingu. Jafnframt felur verkið í sér frárennslislagnir, raflagnir, lágspennudreifingu, lýsingu, ljósastýringu, smáspennukerfi og tengingar við tæknibúnað mannvirkjanna. Einnig skal fullgera loftræsikerfi og allan nauðsynlegan innanhúss- og utanhússfrágang, þar með talið klæðningar, málun, gólfmeðferð, þakfrágang, blikksmíði, þakrennur og niðurföll. Skilafrestur tilboða er 19. júní 2026 kl. 11:00.

Útboðið er birt á: utbodsvefur.is

Deila Facebook X LinkedIn
📧 Fáðu bestu byggingafréttirnar í tölvupósti — reglulega
Skrá mig →