Rafmagnstruflanir fyrirhugaðar á Tröllaskaga og við Eyjafjörð

Fyrirhugaðar eru rafmagnsleysi og truflanir á Tröllaskaga og við Eyjafjörð aðfaranótt fimmtudagsins 6. ágúst vegna vinnu Landsnets við Dalvíkurlínu 2.

Rafmagnstruflanir fyrirhugaðar á Tröllaskaga og við Eyjafjörð
Mynd: Ntate Mohlala Sir / Pexels

Aðfaranótt fimmtudagsins 6. ágúst mun Landsnet spennusetja Dalvíkurlínu 2. Til að framkvæma verkið þarf að taka Dalvíkurlínu 1 úr rekstri á meðan.

Af þeim sökum verður rafmagnslaust í Dalvíkurbyggð, það er að segja á Dalvík, í Svarfaðardal, Skíðadal og í Hrísey, í allt að fjórar klukkustundir. Gera má ráð fyrir stuttum rafmagnstruflunum áður en vinna hefst og eftir að henni lýkur á Ólafsfirði, Árskógsströnd og Grenivík.

Í tilkynningu frá Rarik segir um rafmagnsleysið í Dalvíkurbyggð og Hrísey: „Rafmagnslaust verður í Dalvíkurbyggð og í Hrísey frá kl. 00:05 til kl. 04:05 aðfararnótt fimmtudagsins 6. ágúst. Rafmagn kann þó að koma á í stuttan tíma meðan á prófunum stendur. Ekki skal líta á slíka tímabundna innsetningu sem merki um að framkvæmdinni sé lokið og viðskiptavinir eru beðnir um að gera ráð fyrir truflunum allan tímann.“

Um rafmagnstruflanirnar fyrir og eftir framkvæmdir segir í tilkynningunni: „Gera má ráð fyrir mjög stuttri rafmagnstruflun, eða blikki, einhvern tíma á milli kl. 23:00 og 23:59 miðvikudaginn 5. ágúst. Önnur stutt truflun verður í lok aðgerðarinnar, einhvern tíma á milli kl. 04:05 og 05:00 fimmtudaginn 6. ágúst. Ekki er um samfellt rafmagnsleysi að ræða á þessum svæðum, heldur stutt rof þegar tengingum er breytt í upphafi og lok aðgerðarinnar.“

Sérstaklega er vakin athygli á því að þau sem reiða sig á órofið rafmagn, svo sem vegna viðkvæms búnaðar eða starfsemi, þurfa að gera ráðstafanir vegna þessara truflana. Tímasetningarnar geta breyst ef ófyrirséðar aðstæður koma upp.

Upplýsingar um rafmagnstruflanirnar verða birtar á kortasjá Rarik á rarik.is/rof. Einnig má hafa samband við þjónustuver í síma 528-9000.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn