Rafmagn komið á að nýju í Mosfellsdal

Rafmagn er komið á að nýju í Mosfellsdal eftir að gröfumaður rændi í háspennustreng í morgun. Viðgerðir gengu hratt fyrir sig þar sem bilunin var nákvæmlega þekkt.

Rafmagn komið á að nýju í Mosfellsdal
Mynd: Fatih Yurtman / Pexels

Rafmagn er nú komið á að nýju í Mosfellsdal eftir að háspennustrengur skemmdist í morgun.

Bilunin varð um klukkan hálf tíu þegar gröfumaður rændi í strenginn. „Verktakinn sem gróf í strenginn, hann lét okkur vita sem við kunnum að meta,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna.

Rafmagnsleysið í Mosfellsdal er því ótengt rafmagnsleysi sem gekk yfir stóran hluta Mosfellsbæjar í gærkvöld.

Silja telur að viðgerðir hafi gengið hratt fyrir sig. „Af því að við vitum nákvæmlega hvar bilunin er þá getum við örugglega unnið þetta hratt.“ Um klukkan hálf tólf var rafmagn komið á hjá öllum notendum.

Silja bendir á að það sé algengt að grafið sé í strengi og hvetur fólk til að kynna sér ráð á vef Veitna áður en hafist er handa við jarðvinnu. „Það er alltof algengt að þetta gerist. Það er svo mikilvægt að fólk kynni sér þetta áður en það fer að grafa því að grafa í háspennustreng getur verið mjög hættulegt.“

Fréttin var uppfærð eftir að rafmagn komst aftur á.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn