Ráðgjafar- og greiningarstöð komin með tímabundið húsnæði

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur fengið tímabundið húsnæði í Lágmúla og á Fiskislóð í Reykjavík eftir að mygla greindist í húsnæði stofnunarinnar í Hafnarfirði.

Ráðgjafar- og greiningarstöð komin með tímabundið húsnæði
Mynd: SevenStorm JUHASZIMRUS / Pexels

Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur fengið tímabundið húsnæði fyrir starfsemi sína.

Starfsemi stofnunarinnar hefur verið verulega skert frá því í byrjun ágúst þegar mygla greindist í húsnæði hennar í Dalshrauni í Hafnarfirði. Starfsfólk hefur unnið heima síðan.

Hundruð barna með alvarlegar þroskaskerðingar eru á biðlista og meðalbiðtími er rúmlega tvö ár.

Hlutverk Ráðgjafar- og greiningarstöðvar er að tryggja að börn með alvarlegar þroskaskerðingar, sem geta leitt til fötlunar síðar á ævinni, fái greiningu, ráðgjöf og úrræði til að bæta lífsgæði þeirra. Hún sinnir börnum að 18 ára aldri alls staðar á landinu.

Stofnunin er komin með tímabundið húsnæði á tveimur stöðum, í Lágmúla og á Fiskislóð í Reykjavík. „Og hafa sem sagt klíníska starfið, taka á móti fjölskyldum í Lágmúlanum en hafa flestar vinnustöðvar fyrir starfsfólkið á Fiskislóðinni,“ segir Solveig Sigurðardóttir, staðgengill forstjóra Ráðgjafar- og greiningarstöðvar.

„Þetta er viðunandi tímabundið en það eru kostir og gallar við allt. Kannski helsti gallinn er hvað Fiskislóðin er út úr, ekki miðsvæðis í borginni.“

Solveig segir það vera mikinn ókost að starfsemin sé á tveimur stöðum. „Algjörlega, það er mikill ókostur. Eftir um fimm, sex vikur í heimavinnu þá er þetta ókostur. Og það eru kannski viss vonbrigði hjá starfsmannahópnum með það að þetta sé tímabundna lausnin – en við urðum að finna eitthvað og þetta var lendingin.“

Solveig segist ekki vita nákvæmlega hversu lengi starfsemin verði í tímabundna húsnæðinu en vonar að viðgerðirnar taki ekki lengri tíma en nokkra mánuði. „Við erum að vonast til að þetta verði ekki mikið le.

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn