Radarhýsi rís á Stórhöfða

Landhelgisgæsla Íslands mun setja upp radarhýsi á Stórhöfða í Vestmannaeyjum. Framkvæmdin er liður í eflingu ratsjárvöktunar á hafsvæðinu.

Radarhýsi rís á Stórhöfða
Mynd: needpix.com (CC0)

Landhelgisgæsla Íslands hyggst setja upp radarhýsi á Stórhöfða.

Framkvæmdin er liður í uppbyggingu og eflingu ratsjárvöktunar Landhelgisgæslunnar á hafsvæðinu við Vestmannaeyjar.

Málið var tekið fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Vestmannaeyjabæjar 11. september síðastliðinn og var erindið samþykkt.

Radarhýsið verður staðsett um 48 metra suðsuðvestur af Stórhöfðavita, á landi í eigu íslenska ríkisins.

→ Lesa upprunaleg grein á Tígull

Heimild: Tígull

Deila Facebook X LinkedIn