Pulsan kostaði 40 milljónir – „Teljum að þetta borgi sig fljótt upp“

Knattspyrnusamband Íslands hefur keypt hitapulsu fyrir Laugardalsvöll á 40 milljónir króna. Framkvæmdastjóri sambandsins, Eysteinn Pétur Lárusson, telur að fjárfestingin borgi sig hratt upp.

Pulsan kostaði 40 milljónir – „Teljum að þetta borgi sig fljótt upp“
Mynd: Zaur Takhgiriev / Pexels

Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur keypt hitapulsu fyrir Laugardalsvöll á 40 milljónir króna. Framkvæmdastjóri sambandsins, Eysteinn Pétur Lárusson, telur að fjárfestingin muni margborga sig.

Pulsan hefur verið leigð nokkur skipti undanfarin ár á genginu 15-20 milljónir króna hverju sinni. Kaupin eru liður í því að tryggja að leikir verði ekki færðir til annarra landa, en nýverið kom upp umræða um að færa leiki landsliða og íslenskra félagsliða í Evrópukeppni erlendis. Víkingar þurftu til að mynda nærri því að leika umspilsleiki sína í Sambandsdeild Evrópu í Færeyjum.

Fjárfestingin var gerð í samstarfi við evrópska knattspyrnusambandið UEFA, í gegnum uppbyggingarsjóð þeirra. „Það er ekkert launungarmál hvað hann kostar. Þessi dúkur kostar um 40 milljónir króna,“ segir Eysteinn Pétur Lárusson. „Það er búið núna allavega tvisvar, ef ekki þrisvar, að leigja hann. Í hvert skipti hefur þetta verið í kringum 15–20 og hann hefur stoppað hér í kannski 4–5 vikur.“

„Það hefur verið krafa frá UEFA að við séum með plan B og öll tiltæk ráð til að halda vellinum klárum. Þannig að fyrir okkur var ekki spurning að fara í þessa fjárfestingu,“ segir hann. „Við höfum rætt það lengi að skoða með kaup á henni. Það var ákveðið að ráðast í að kaupa hana núna með stuðningi úr fjárfestingarsjóðum UEFA.“

„Við höfum leigt hana áður og í hvert skipti hefur það verið 15 til 20 milljónir, þannig að við teljum að fjárfestingin borgi sig fljótt upp. Hún skiptir gríðarmiklu máli til að geta haldið Laugardalsvelli leikhæfum allt árið um kring.“

→ Lesa upprunaleg grein á RÚV

Heimild: RÚV

Deila Facebook X LinkedIn