Probygg bauð lægst í breytingar á Kerhólsskóla

Probygg ehf á Flúðum hefur lagt fram lægsta tilboðið í breytingar á Kerhólsskóla á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Tilboð Probygg nemur 96,1 milljón króna, sem er 16,5% undir kostnaðaráætlun Grímsnes- og Grafningshrepps, en hún er 115,2 milljóni

Probygg bauð lægst í breytingar á Kerhólsskóla
Mynd: needpix.com / CC0 / Pexels

Probygg ehf á Flúðum hefur lagt fram lægsta tilboðið í breytingar á Kerhólsskóla á Borg í Grímsnes- og Grafningshreppi. Tilboð Probygg nemur 96,1 milljón króna, sem er 16,5% undir kostnaðaráætlun Grímsnes- og Grafningshrepps, en hún er 115,2 milljónir króna.

Verkið felur í sér að efri hæð gamla stjórnsýsluhússins verður innréttuð sem kennslustofur og önnur stoðrými fyrir skólastarf. Alls bárust ellefu tilboð í verkið. E. Sigurðsson ehf bauð 99,1 milljón króna, Borg byggingarlausnir 106,9 milljónir, Tindhagur 108,4 milljónir, Verkeining 108,6 milljónir, K16 109,6 milljónir, All Verk 112,1 milljón, Alefli 113,7 milljónir, HR smíði 123,3 milljónir, Vörðufell 130,0 milljónir og Atlas verktakar 134,2 milljónir króna. Áætlað er að verkinu ljúki þann 1. apríl næstkomandi.

→ Lesa upprunaleg frétt á vef Sunnlenska

Heimild: Sunnlenska

Deila Facebook X LinkedIn