Virkir notendur í nýju appi mun fleiri

Nýtt ON app hefur slegið í gegn frá því það fór í loftið fyrir skemmstu, en virkum notendum hefur fjölgað um heil 60% á stuttum tíma. Þetta er afrakstur umfangsmikillar vinnu Orkuveitu Reykjavíkur (OR

Virkir notendur í nýju appi mun fleiri
Mynd: Julia Volk / Pexels

Nýtt ON app hefur slegið í gegn frá því það fór í loftið fyrir skemmstu, en virkum notendum hefur fjölgað um heil 60% á stuttum tíma. Þetta er afrakstur umfangsmikillar vinnu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) við að flytja hleðsluþjónustu ON yfir í nýtt og öflugra kerfi, sem hefur mikla þýðingu fyrir almenning og framtíð rafbílavæðingar á Íslandi.

Verkefnið, sem tók um sjö mánuði í undirbúningi, fólst í því að flytja um 85 þúsund notendur, 40 þúsund hleðslulykla og um 6.600 hleðslustöðvar á rúmlega 2.000 staðsetningum yfir í nýja kerfið. Þrátt fyrir þessa gríðarlegu flutninga, sem krefjast þess að réttur ON-lykill tengist réttri hleðslustöð og réttum notanda, gekk yfirfærslan afar vel. Langflestir notendur gátu haldið áfram að hlaða bíla sína án vandræða, jafnvel á meðan kerfisflutningurinn stóð yfir, en yfir 4.000 hleðslur fara fram á hleðsluneti ON á hverjum sólarhring.

Úlfar Linnet, forstöðumaður einstaklings- og fyrirtækjalausna hjá ON, lýsir verkefninu sem einu stærsta stafræna verkefni á sviði hleðsluþjónustu sem fyrirtækið hefur ráðist í. Hann leggur áherslu á að meginmarkmiðið hafi verið að tryggja óslitna þjónustu fyrir notendur, sem tókst með ágætum. „Nú getum við um leið boðið upp á nýja virkni sem gerir hleðslu enn einfaldari og þægilegri fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Úlfar og þakkar viðskiptavinum fyrir jákvæðar viðtökur.

Nýja appið býður upp á fjölmargar nýjungar sem auka notendavænni og auðvelda stjórnun hleðslu. Til dæmis geta notendur í Hleðsluáskrift nú séð sína stöð beint í appinu, og í framtíðinni verður hægt að nýta snjallhleðslu til að tímastýra hleðslu, sem mun án efa bæta upplifun rafbílaeigenda enn frekar.

Heimild: isor.is

Deila Facebook X LinkedIn