Til hamingju með Hellisheiðarvirkjun
Í dag eru tuttugu ár liðin frá því að Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar (ON) var formlega gangsett, en hún hefur verið mikilvægur hornsteinn í orkumálum Íslands. Orkuveitan, móðurfélag ON, stóð fyr
Í dag eru tuttugu ár liðin frá því að Hellisheiðarvirkjun Orku náttúrunnar (ON) var formlega gangsett, en hún hefur verið mikilvægur hornsteinn í orkumálum Íslands. Orkuveitan, móðurfélag ON, stóð fyrir byggingu virkjunarinnar sem hefur vaxið og dafnað í áföngum frá upphafi. Rafmagnsframleiðsla hófst árið 2006 og árið 2010 var varmastöðin tekin í notkun til að framleiða heitt vatn, sem hefur skipt sköpum fyrir hitaveitu höfuðborgarsvæðisins. Frá árinu 2014 hefur rekstur Hellisheiðarvirkjunar verið í höndum Orku náttúrunnar.
Í dag er uppsett afl Hellisheiðarvirkjunar 303 megavött, sem sér heimilum og atvinnulífi um land allt fyrir rafmagni. Virkjunin getur framleitt 950 lítra á sekúndu af heitu vatni, en eftir áramót mun framleiðslugetan aukast í 1500 lítra á sekúndu. Þetta heita vatn er ómissandi fyrir hitaveitukerfi Veitna, sem hitar heimili, skóla og vinnustaði á höfuðborgarsvæðinu, auk þess að halda sundlaugum okkar heitum.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar, leggur áherslu á mikilvægi virkjunarinnar: „Hellisheiðarvirkjun hefur í tuttugu ár verið mikilvæg undirstaða lífsgæða og verðmætasköpunar á Íslandi. Við vinnum nú að því að auka framleiðslu á heitu vatni til að mæta þörfum samfélagsins til framtíðar, en slík uppbygging krefst langtímahugsunar.“
Við Hellisheiðarvirkjun hefur einnig byggst upp Jarðhitagarður ON, þar sem fyrirtæki nýta sér raforku, varma og vatn til fjölbreyttrar nýsköpunar. Þar fer meðal annars fram ræktun smáþörunga og föngun koldíoxíðs úr andrúmslofti. Virkjunin hefur einnig verið vettvangur þróunar á lausnum til að draga úr losun frá jarðhitanýtingu, eins og Carbfix-tæknin og lofthreinsistöðin Steingerð, sem opnaði árið 2025, hafa sýnt. Þessar lausnir gera kleift að fanga koldíoxíð og brennisteinsvetni úr jarðhitagasinu og binda þau í bergi, sem er mikilvægt skref í átt að sjálfbærari orkuframleiðslu. Framtíðarrannsóknir á ofurheitum jarðhita gætu opnað enn frekari möguleika í þessum efnum.
Heimild: isor.is