Sérfræðingar ON á stærstu jarðhitaráðstefnu heims
Íslensk sérþekking á jarðhita er í forgrunni á World Geothermal Congress (WGC), stærstu jarðhitaráðstefnu heims, sem hófst í dag í Calgary í Kanada. Ráðstefnan, sem haldin er á þriggja ára fresti, dre
Íslensk sérþekking á jarðhita er í forgrunni á World Geothermal Congress (WGC), stærstu jarðhitaráðstefnu heims, sem hófst í dag í Calgary í Kanada. Ráðstefnan, sem haldin er á þriggja ára fresti, dregur saman helstu sérfræðinga, vísindafólk og fulltrúa stærstu fyrirtækja úr jarðhitageiranum alls staðar að úr heiminum.
Orka náttúrunnar (ON), dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur (OR), sendir fjölmennan hóp sérfræðinga á ráðstefnuna. Þátttaka þeirra endurspeglar þá gríðarlegu reynslu og þekkingu sem hefur byggst upp hér á landi í nýtingu jarðhita. Á Íslandi er jarðhiti sjálfsagður hluti af daglegu lífi, en á alþjóðavettvangi er staðan oft allt önnur. Þar er jarðhiti enn sérhæfð auðlind og mörg lönd eru rétt að byrja að nýta hann, en Ísland hefur verið í fararbroddi í áratugi.
Sérfræðingar ON munu flytja fjölbreytt erindi á ráðstefnunni sem fjalla um nýsköpun í orkunýtingu, rekstur jarðhitavirkjana, boranir, orkuöryggi og þróun sjálfbærra innviða. Þessi erindi gefa innsýn í þá breidd sem einkennir starfsemi ON og þá reynslu sem fyrirtækið hefur byggt upp í rekstri tveggja stærstu jarðvarmavirkjana landsins.
Árni Hrannar Haraldsson, framkvæmdastjóri ON, mun flytja eitt af erindunum þar sem hann fjallar um hið svokallaða borprógramm. Þetta mikilvæga prógramm felur í sér borun á 16 nýjum borholum á næstu tveimur árum og er lykilatriði fyrir örugga og sjálfbæra orkuvinnslu til framtíðar. Þessar framkvæmdir tryggja að almenningur á höfuðborgarsvæðinu geti áfram notið þeirra lífsgæða sem jarðhitinn veitir, hvort sem það er heitt vatn í krana eða rafmagn í innstungum.
Heimild: isor.is