Gestir Vísindavöku spreyttu sig á Ljósleiðaraþrautum
Á dögunum opnaði Ljósleiðarinn, ásamt öðrum fyrirtækjum innan Orkuveitu Reykjavíkur (OR), dyr sínar á Vísindavöku og bauð gestum að kynnast tækninni sem tengir fólk, atvinnulíf og tækifæri. Þessi þátt
Á dögunum opnaði Ljósleiðarinn, ásamt öðrum fyrirtækjum innan Orkuveitu Reykjavíkur (OR), dyr sínar á Vísindavöku og bauð gestum að kynnast tækninni sem tengir fólk, atvinnulíf og tækifæri. Þessi þátttaka er mikilvægur liður í því að kynna starfsemi fyrirtækisins og vekja áhuga almennings á tækni og nýsköpun, sérstaklega með tilliti til þeirra tæknilegu innviða sem hafa djúpstæð áhrif á daglegt líf okkar.
Fyrir Ljósleiðarann er það einnig lykilatriði að kveikja áhuga ungs fólks á tæknigreinum og sýna fjölbreytileika starfa sem tengjast uppbyggingu, rekstri og þróun fjarskiptainnviða. Með því að opna glugga inn í heim tækninnar er hægt að skapa forvitni, hvetja til náms og leggja grunn að næstu kynslóð sérfræðinga sem munu halda áfram að byggja upp og viðhalda þessum mikilvægu kerfum.
Á sýningarsvæði Ljósleiðarans gátu gestir skoðað ýmis tæki og tól sem notuð eru við uppbyggingu og rekstur ljósleiðarakerfisins. Starfsfólk átti mörg góð samtöl við gesti, svaraði spurningum og útskýrði hvernig ljósleiðaratæknin flytur upplýsingar með hraða og áreiðanleika sem nútímasamfélagið reiðir sig á á hverjum degi. Gestir á öllum aldri sýndu tækninni mikinn áhuga og fengu tækifæri til að kynnast ljósleiðarainnviðunum sem liggja undir fótum okkar.
Ljósleiðarinn bauð gestum einnig að spreyta sig á spurningaleik þar sem reyndi á þekkingu á ljósleiðaratækni og starfsemi fyrirtækisins. Ein af spurningunum sem reyndist hvað erfiðust sneri að umfangi innviðanna sem tengja samfélagið saman: Hversu margir kílómetrar af ljósleiðaraþráðum liggja um Ísland? Fáir gera sér grein fyrir umfangi kerfisins sem er nánast ósýnilegt og liggur undir jörðu eða inn í veggjum, en í raun teygir ljósleiðaranetið sig nánast um 300.000 kílómetra um landið. Þetta hálfósýnilega en gríðarstóra kerfi gegnir lykilhlutverki í daglegum samskiptum landsmanna.
Heimild: isor.is