Franski utanríkisráðherrann heimsótti Hellisheiðarvirkjun
Í gær heimsótti Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, Hellisheiðarvirkjun í boði Orkuveitunnar. Heimsóknin var hluti af opinberri ferð ráðherrans til Íslands þar sem hann kynnti sér íslenska
Í gær heimsótti Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, Hellisheiðarvirkjun í boði Orkuveitunnar. Heimsóknin var hluti af opinberri ferð ráðherrans til Íslands þar sem hann kynnti sér íslenskar lausnir á sviði endurnýjanlegrar orku og varanlegrar kolefnisbindingar, auk þess að funda með íslenskum stjórnvöldum um samstarf ríkjanna og Evrópumál.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitunnar, tók á móti gestunum og kynnti mikilvægt hlutverk fyrirtækisins í uppbyggingu innviða, orkuskiptum og loftslagslausnum. Þessar framkvæmdir Orkuveitunnar eru grundvallaratriði fyrir almenning, þar sem þær tryggja örugga orkuveitu og stuðla að sjálfbærari framtíð fyrir landið allt.
Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, fjallaði um nýtingu jarðhita á Íslandi og hvernig endurnýjanleg orka hefur skapað grunn að samkeppnishæfni og sjálfbærri þróun. Að því loknu kynnti Edda Sif Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix, tækni fyrirtækisins til föngunar og varanlegrar steinbindingar koltvísýrings. Þessi tækni felst í því að binda koltvísýring úr andrúmsloftinu og dæla honum djúpt niður í jörðina þar sem hann breytist í stein, sem er varanleg og örugg leið til að minnka magn gróðurhúsalofttegunda.
Heimsókninni lauk með vettvangsferð að niðurdælingarsvæði Carbfix við Hellisheiðarvirkjun. „Það er mikill heiður að taka á móti franska utanríkisráðherranum og sendinefnd hans. Slíkar heimsóknir endurspegla þann alþjóðlega áhuga sem er á íslenskri þekkingu á jarðhita, uppbyggingu sjálfbærra innviða og loftslagslausnum,“ sagði Sævar Freyr Þráinsson. Hann bætti við að Orkuveitan leggi áherslu á að deila þeirri reynslu sem byggst hefur upp á Íslandi og vinna með samstarfsaðilum að lausnum sem nýtast víðar í heiminum.
Heimild: isor.is