Framhaldsskólakennarar kynntu sér nýsköpun í loftslags- og orkumálum

Framhaldsskólakennarar víðs vegar að af landinu heimsóttu Hellisheiðarvirkjun nýlega til að kynna sér nýsköpun í loftslags- og orkumálum, með áherslu á sjálfbæra orkunýtingu og bindingu kolefnis.

Framhaldsskólakennarar kynntu sér nýsköpun í loftslags- og orkumálum
Mynd: Koen Swiers / Pexels

Framhaldsskólakennarar víðs vegar að af landinu heimsóttu Hellisheiðarvirkjun á dögunum í fræðsluferð. Markmið ferðarinnar var að efla þekkingu kennara á lausnum og verkefnum sem þróuð hafa verið á Hellisheiði og geta nýst í kennslu um umhverfis- og loftslagsmál.

Dagskráin hófst í Jarðhitasýningu ON þar sem kennarar fengu kynningu á starfsemi og hlutverki sýningarinnar við að vekja áhuga á jarðvísindum, orkumálum og loftslagsáskorunum.

Dr. Ingunn Gunnarsdóttir, leiðtogi nýsköpunar hjá Orku náttúrunnar, kynnti starfsemi fyrirtækisins, sjálfbæra nýtingu jarðhita á Hellisheiði og fjölbreytt verkefni sem tengjast auðlindinni. Hún fjallaði einnig um Jarðhitagarð ON, þar sem fyrirtæki og frumkvöðlar vinna að nýjum lausnum sem byggja á fjölnýtingu jarðhita, auk þess að kynna djúpborunarverkefni Orkuveitunnar.

Kennararnir fengu jafnframt innsýn í starfsemi Carbfix og vísindin á bak við varanlega bindingu koltvísýrings í bergi. Dr. Kári Helgason fjallaði um leið kolefnis frá andrúmslofti til steinda og setti það í samhengi við loftslagsbreytingar. Dr. Katrín Steinþórsdóttir kynnti rannsóknir og jarðfræði sem liggja að baki verkefnunum og hvernig Carbfix-tæknin getur nýst víðar en á Íslandi. Hún sýndi jafnframt möguleika bindingar í bergi á Íslandi og tengdi þá við lausnir sem þarf til að sporna við hlýnun jarðar. Þar kemur langfyrst að skipta yfir í endurnýjanlega orkugjafa sem er forgangsat.

Heimild: isor.is

Deila Facebook X LinkedIn